top of page

SiðfrÆði, Gagnrýnin hugsun og alLskyns

Allar götur síðan ég lauk grunnnámi í heimspeki frá Háskóla Íslands þá hef ég kennt með öðrum störfum. Fyrst í Menntaskólanum á Akureyri, þá í stundakennslu við Háskólann á Akureyri og svo á margvíslegum námskeiðum fyrir ýmsa; einkafyrirtæki, símenntunaraðila og verkalýðsfélög. Ég hef líka tekið að mér að halda fyrirlestra og erindi um fjölbreytt viðfangsefni á ráðstefnum og málþingum. Mismikið á milli ára en verið mér afar dýrmætt og ég hef litið á kennsluna sem endurmenntun. Heilmikill lærdómur að kenna öðrum.

Mynd: Ragnar Hólm

Námskeið

Námskeiðin eru fyrst og fremst á sviði siðfræði og samskipta:

  • Siðfræði - grundvallaratriði. Hvað er siðfræði? Til hvers er hún? Helstu kenningar.

  • Á mér að líða vel í vinnunni? Um vellíðan á vinnustað og vinnuna sem þroskakost.

  • Siðferðileg hlið samskipta. Um vandamál á vinnustöðum s.s. áreitni, einelti og samskiptavanda og siðferðilega hlið þeirra

  • Siðfræði vinnustaðarins. Lengra námskeið sem inniber alla þætti hinna námskeiðanna

 

En jafnframt á sviði gagnrýninnar hugsunar og skoðanamótunar

  • Heimspeki fyrir alla. Um heimspeki almennt og hvað hún eiginlega sé?

  • Af hverju segir þú það?

  • Lætur þú ljúga af þér? (Hjá SÍMEY nú í nóvember. Sjá hér.)

  • Upplýsingarýni (hluti námskeiðs á vegum Sigurðar Kristinssonar í HA)

 

Fyrirlestrar

Ég held styttri fyrirlestra þar sem ég fjalla um einstaka þætti í námskeiðunum hér að ofan:

  • Á mér að líða vel í vinnunni? Hver ber ábyrgð á vellíðan á vinnustað?

  • Holukenningin. Aristóteles, þroski, hamingja og vinnustaðurinn.

  • Hvað er rangt við einelti? Einelti með með hliðsjón af siðfræðinni.

  • Hvað er sjálfræði? Sjálfræði sem siðferðileg verðmæti.

  • Í sjálfsvald sett? Um gæði í öldrunarþjónustu frá sjónarhóli siðfræði.

  • Vinnugleði? Örfyrirlestur um hana.

  • Í hamingjunnar bænum. Aristóteles og hamingjan.

  • Læturðu ljúga að þér? - Um gagnrýna hugsun og okkar eigin skoðanir.

 

Ég hef iðulega fengið beiðnir um að halda fyrirlestra sem hafa reynst heilmiklar áskoranir. Brekkurnar eru mest þroskandi. Dæmi um þetta eru fyrirlestranir:

 

  • Hvað er alþjóðavæðing?  - Á ráðstefnu um þjónustu við fatlaða í alþjóðavæddum heimi.

  • Hvað er ofbeldi?  - Á ráðstefnu um ofbeldi gegn öldruðum

  • Hvernig græðum við á menningu? Á ráðstefnu um byggðamál

  • Sköpunarmátturinn og atvinnulífið (Eða hver fann upp Björk?). Um gildi listar í daglegu lífi. 

  • Í sjöunda himni? Um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaganna á málþingi Þroskaþjálfa.

  • Orð og æði. Um gæði í öldurnarþjónustu á ráðstefnu um þau.

  • Var Guð fundinn upp eða uppgötvaður? Um mynd Guðs og manns á fræðslukvöldi í Glerárkirkju.

 

 

 

Verð og tímalengd

Verð fyrir námskeið eða fyrirlestra er samkomulagsatriði í hvert sinn. Tímalengd ræðst af aðstæðum hverju sinni en í sumum fyrirlestrum og námskeiðum er nauðsynlegt að afmarka lágmarkslengd vegan umfangs viðfangsefnis.

 

© 2014 Þórgnýr Dýrfjörð. Byggt á grunni frá Wix.com

bottom of page